Baughús 10 m. bílskúr, 112 Reykjavík (Grafarvogur)
82.900.000 Kr.
Hæð/ Hæð í tvíbýlishúsi
4 herb.
130 m2
82.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1990
Brunabótamat
41.140.000
Fasteignamat
61.650.000

Mjög góð neðri sérhæð ásamt bílskúr í fallegu tvíbýlishúsi með frábæru útsýni til Esjunnar og víðar.  Íbúðin er um 109 fm. og bílskúrinn er 21 fm. eða alls um 130 fm.  Íbúðin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi, stórt sjónvarpshol og þrjú svefnherbergi.  Aðkoma að húsinu og bílskúrnum er að efri hæð og gengið niður tröppur á sérlóð íbúðarinnar að útidyrum.

Nánari lýsing:  Komið er á flísalagða forstofu með fataskáp.  Af henni er parketlagt herbergi með skápum.  Holið er parketlagt, samliggjandi við stofu og eldhús.  Stofan er parketlögð, gluggar á tvær hliðar og opin við eldhúsið.  Eldhúsið er parketlagt, með hvitri innréttingu, keramik helluborði og lögn fyrir uppþvottavél sem fylgir.  Nýleg vinnuborð á innréttingu.  Parketlagður gangur.   Baðherbergið er með flotuðu gólfi, innréttingum, sturtuklefa, gluggum og útgangi í garðinn.  Aðstaða fyrir þvottavél og gott skápapláss á baði.  Parketlagt herbergi með skápum og gluggum á tvo vegu.  Mjög rúmgott parketlagt sjónvarpshol og innaf því er parketlagt herbergi með fataskáp.  Sameiginleg geymsla með inntökum fyrir vatn og rafmagn er af holinu.

Bílskúrinn er með gluggum, köldu vatni, hita, rafmagni og hurðaropnara.

Húsið er fallegt 2ja hæða hús með valmaþaki, múrað með spánskri áferð.  Hellulagt bílaplan og töppur að íbúð.  Lóðinni er skipt þannig að neðri hæðin á austurlóðina sem sérlóð, en efri hæðin.

Ath. íbúðin sjálf er skráð 87,3 fm. í skrám HMS, en sjónvarpsholinu og hluta svefnherbergis þar innaf hefur verið bætt við íbúðina og er sú breyting óskráð.  Íbúðin er því stærri en skv. teikningu og framangreind stærð er skv. uppmælingu frá teikningu, miðað við núverandi skipulag.

Lóð hússins er skipt þannig, að suðurhlið og vesturhlið að húshorni tilheyra efri hæð, austurhluti lóðarinnar tilheyrir neðri hæð.  Norðurhlið er sameiginleg, en þar á neðri hæð sérafnotarétt fyrir sólpall frá baðherbergi í vestri og að verönd í austri, 3 metra út frá húsvegg.  Sérbílastæði fyrir bíl er framan við bílskúrinn, en aukabílastæði á hellulögðu bílaplani við aðkomu, tilheyrir efri hæð.


Frábær staðsetning, stutt í skóla og leikskóla, golfvöll, Egilshöll og alla helstu þjónustu í Spönginni.  Fallegar gönguleiðir í næsta nágrenni.

Íbúðin getur losnað fljótlega.

Allar nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lfs. [email protected] eða í síma 894-7070.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.