Fasteignasalan Miðborg kynnir 173,4 fm. atvinnuhúsnæði með sérinngangi á 2. hæð að Eiðistorgi 17 á Seltjarnarnesi. Sérinngangur á vesturhlið, en einnig er aðgengi að húsnæðinu úr stigagangi hússins, þar sem einnig er aðkoma að íbúðunum á efri hæðum. Gluggahlið er á suðurhlið meðfram Nesvegi, gluggar á vesturhlið og gluggahlið til norðurs inn á Eiðistorgið. Laust strax.
Nánri lýsing: Komið er á
forstofu. Rúmgóð
snyrting og móttaka og skrifstofa innaf móttöku. Ræstikompa með vaskaborði. Gengið er upp á pall (5 þrep). Þar er búningsaðstaða og wc fyrir börn og fullorðna, ásamt sturtu. Að öðru leyti er húsnæðið
stór salur með glugga á báðar hliðar og geymslu undir palli. Aðgengi úr sameign hússins í salinn.
Húsnæði sem býður uppá ýmsa möguleika.
Nánari upplýsingar veitir Björn Þorri VIktorsson hrl. og lfs.,
[email protected] eða í síma 894-7070.