Fasteignasalan Miðborg kynnir Haukanes 20 í Arnarnesi í Garðabæ, 119,1 fm neðri sérhæð í tvíbýli ásamt 30,2 fm. bílskúr á sjávarlóð sem er 1.467 fm. eignarlóð. Heildar séreignarfermetrar eru því skráðir 149,3 fm. hjá Þjóðskrá Íslands.
Um er að ræða 3ja herbergja neðri sérhæð ásamt bílskúr í tvíbýli á þessum einstaka stað við sjóinn. Nánari lýsing: Komið er á flísalagða
forstofu með fataskáp. Af henni er parketlagt
svefnherbergi, sem einnig er gengið í af holi/gangi íbúðarinnar sjálfrar. Af forstofu er parketlagt
hol/stofa með niðurlímdu parketi. Samliggjandi er
borðstofa/skáli með flísum á gólfi og útgangi í garðinn á hellulagða suður- og vestur verönd. Allt þetta rými er bjart og með góðum gluggum og fallegu sjávarútsýni.
Eldhús er með parketi og flísum á gólfi, IKEA innréttingu, helluborði, ofni og háfi. Gluggi við loft. Innaf eldhúsi er flísalagt
þvottahús með hillum og skápum.
Hjónaherbergið er parketlagt og með skápum. Hiti í gólfi (rafmagn).
Baðherbergið er flísalagt með vegghengdu wc, innrétttingu og sturtuklefa. Hiti í gólfi (rafmagn). Baðherbergið er gluggalaust en loftræst með viftu.
Bílskúrinn er með flísum á gólfi gönguhurð og opnara á bílskúrshurð, vatn, hiti og rafmagn. Sturta í bílskúr og góðir gluggar. Hleðsla fyrir rafmagnsbíla í bílskúr. Innaf bílskúr er lítið
vinnuherbergi/geymsla með hillum og vinnuborði. Austur-verönd við hlið bílskúrsins. Fyrir aftan bílskúrinn er óskipt áhaldageymsla úr timbri, sem ekki er inni í skráðum séreignar-fermetrafjölda eignarinnar.
Skipt var um gler í stofu fyrir ca. 5-7 árum og gler og pósta í svefnherbergjum.
Þakjárn og þakkantur á húsinu var endurnýjað fyrir ca. 10 árum.
Hiti er sameiginlegur og á neðri hæðin 40% hússins skv. eignaskiptasamningi.
Skv. eignaskiptasamningi er lóðinni skipt, þannig að neðri hæðin hefur sérafnotarétt af lóðinni sjávarmegin, en efri hæðin af lóðinni að götunni.
Einstök staðsetning við sjóinn í rólegri og fallegri götu á Arnarnesinu.
Fasteignamat eignarinnar 2024 er kr. 110.150.000,-
Nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lögg. fasteignasali, í síma 894-7070 eða
[email protected].