Til sölu eða leigu: Gott skrifstofu- og þjónustuhúsnæði að Kirkjubraut 40, Akranesi, staðsett miðsvæðis í bænum.
Vandað og nýlega innréttað 230 fm. skrifstofuhúsnæði á jarðhæð. Frábær staðsetning, næg bílastæði og góð aðkoma.
Rýmið var að miklu leyti endurnýjað/innréttað árið 2020, m.a. gólfefni, innréttingar og tæki. Gott aðgengi frá götu og bílastæðum og rafstýrðar aðkomuhurðir. Bakinngangur í austurenda hússins.
Eignin skiptist í móttöku/opið rými með stóru afgreiðsluborði og góðri vinnuaðstöðu, 5 lokuð skrifstofuherbergi (með möguleika á fleirum), rúmgott fundarherbergi, kaffikrók með góðri innréttingu, rúmgóða geymslu (peningaskáp), 2 snyrtingar og raflagnaherbergi.
Eignin er að hluta til í útleigu í dag, en 3 skrifstofuherbergi eru laus, ca. 20 fm., 16. fm. og 12 fm.
Húsið er klætt að utan með álklæðningu. Sameiginleg hitaveitukynding með öllu húsinu. Skipt var um glugga og gler eftir þörfum á 2. og 3. hæð árið 2018.
Ljósleiðari. Öryggiskerfi. Varmaskiptir.
Hússjóður er kr. 70.500 pr. mán.
Nánari upplýsingar veita:
Björn Þorri Viktorsson lögmaður og lögg. fasteignasali s. 894-7070 / [email protected]